Nefnd um eftirlit með lögreglu er skipuð þremur mönnum og jafnmörgum til vara. Þrír varamenn eru einnig skipaðir samkvæmt tilnefningum frá sömu aðilum.
Nefndina skipa:
- Skúli Þór Gunnsteinsson, lögfræðingur og jafnframt formaður, tilnefndur af ráðherra,
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir, hæstaréttarlögmaður, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands og
- Kristín Edwald, hæstaréttarlögmaður, tilnefnd af Lögmannafélagi Íslands.
Varamenn nefndarmanna eru:
- Margrét Einarsdóttir, lögfræðingur, og jafnframt varaformaður, tilnefnd af ráðherra,
- Flosi Hrafn Sigurðsson, héraðsdómslögmaður, tilnefndur af Mannréttindaskrifstofu Íslands og
- Grímur Sigurðarson, hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Íslands.
Starfsmaður nefndarinnar er Margrét Lilja Hjaltadóttir, lögfræðingur.